Leikir framundan hjá KKF ÍBV
Úrslit, leikir og staða:
Leiktíð K.K.D. ÍBV 2011-2012:
Meistaraflokkur:

2.d.karla:
Dagskrá og staða.

Nákvæm staða.

Dagskrá og úrslit.
Liðin.

Skortölfræði.

Dagskrá hjá ÍBV.

Úrslit hjá ÍBV.

Drengjaflokkur:

8. flokkur:

Minnibolti:

Eyjapeyjar í örðum liðum:

Kristján Tómasson (íBV) / Keflavík

Alexander Jarl (ÍBV/Haukar) / Stjarnan

Kristján E. (ÍBV) / Sindri

Fréttir

30. nóvember 2009

Minniboltinn:

Framfarir hjá strákunum okkar

vantar mynd
Strákarnir í minniboltanum tóku þátt í annarri umferð Íslandsmótsins á dögunum en mótið fór fram á Selfossi.  ÍBV leikur í C-riðli en leikið var gegn Reykdælum, UMFH, FSU og Hamri.  Strákarnir stóðu sig vel, voru lengi í gang en á seinni keppnisdeginum sýndu þeir hvað í sér býr.

Eftir langa en skemmtilega ferð austur á Hornafjörð í fyrstu umferðinni, var kærkomin tilbreyting að eiga stutta ferð fyrir höndum á Selfoss.  Farið var með fyrri ferð Herjólfs á laugardeginum en fyrsti leikur Eyjapeyja var klukkan 14.00.  Þeir sem fóru í ferðina voru (í stafrófsröð): Arnar Geir Gíslason, Arnar Júlíusson, Ágúst Marel Gunnarsson, Haukur Bjarnason, Hjörtur Ægisson, Jökull Elí Þorvaldsson, Jörgen Freyr Ólafsson, Sigurður Guðnason, Theodór Árni Hlöðversson, Tómas Ægisson, Víðir Gunnarsson.  Fararstjóri var Ólafur Snorrason og þjálfari er Júlíus G. Ingason.
 
Strákarnir voru hressir á leiðinni upp á land en eitthvað sat samt Herjólfsferðin í þeim í fyrsta leiknum, gegn Reykdælum. Reykdælir eru klárlega með einn efnilegasta körfuknattleiksmann landsins í þessum árgangi í sínum röðum.  Eyjapeyjar mættu ekki nógu einbeittir til leiks og töpuðu 68:7.  
Stig ÍBV: Hjörtur Ægisson 4, Ágúst Marel Gunnarsson 3.
 
Næsti leikur var svo klukkustund síðar gegn Hrunamönnum.  Fyrsti leikhluti var nokkuð góður en að honum loknum var staðan 8:6 UMFH í vil.  En á meðan Hrunamenn héldu uppteknum hætti í öðrum leikhluta, hættu Eyjapeyjar hreinlega að hitta og skoruðu aðeins tvö stig í öðrum leikhluta.  Í þriðja leikhluta bættu Eyjamenn varnarleikinn og Hrunamenn skoruðu aðeins fjögur stig.  En sóknarleikurinn var áfram vandamál og í þetta skiptið skoraði ÍBV ekki stig í leikhlutanum.  Fjórði leikhluti var á svipuðum nótum og fimmti líka nema smá saman fóru menn að hitta og lokatölur urðu 36:16.  Þarna áttum við góðan séns en því miður lentum við á leik þar sem hittnin var engin.  Varnarleikurinn var hins vegar ágætur. 
Stig ÍBV: Hjörtur Ægisson 8, Ágúst Marel Gunnarsson 4, Haukur Bjarnason 2, Jökull Elí Þorvaldsson 2.
 
Nú var fyrri degi lokið og ekkert annað að gera en að koma sér fyrir í Selinu, sem var aðeins 30 metra frá íþróttahúsinu.  Að því loknu var farið í sund og síðan á KFC áður en menn fóru að halla sér og safna orku fyrir seinni tvo leikina.
 
Strákarnir tóku daginn snemma, vöknuðu 6.30 enda var fyrsti leikur strax klukkan 8.00.  Sá leikur var gegn heimamönnum í FSU.  Varnarlega voru fyrstu þrír leikhlutarnir í góðu lagi.  Selfyssingar skoruðu átta stig í fyrsta leikhluta, fjögur í öðrum og átta í þriðja.  En enn vantaði upp á skotnýtinguna hjá ÍBV og á meðan FSU var komið með 20 stig, þá vorum við bara með 9.  Þá gáfust menn hreinlega upp og lokatölur urðu 52:14, allt of stórt tap miðað við getu liðanna.
Stig ÍBV: Ágúst Marel Gunnarsson 5, Arnar Geir Gíslason 4, Jörgen Freyr Ólafsson 2, Hjörtur Ægisson 2, Tómas Ægisson 1.
 
Þá var það síðasti leikurinn, gegn Hamri.  Strákarnir voru vissir að þeir myndu vinna Hamar enda höfðu þeir unnið þá í fyrstu umferðinni nokkuð sannfærandi.  Og þegar strákarnir trúðu því að þeir myndu vinna, þá gerðu þeir það.  Eyjamenn byrjuðu af miklum krafti, komust í 10:2 í fyrsta leikhluta og fylgdu því svo eftir og staðan eftir 2. leikhluta var 22:10.  Munurinn jókst, staðan eftir 3. leikhluta var 32:14 og 41:18 eftir 4. leikhluta.  Leiknum lauk svo með stórsigri ÍBV 52:25 og um leið tryggðu Eyjamenn sér áframhaldandi sæti í C-riðli.
Stig ÍBV: Arnar Geir Gíslason 16, Jörgen Freyr Ólafsson 12, Ágúst Marel Gunnarsson 10, Tómas Ægisson 8, Arnar Júlíusson 2, Sigurður Guðnason 2, Hjörtur Ægisson 2.
 
Eftir leikinn var dótið tekið saman og farið rakleiðis í Herjólf.  Herjólfsferðin var þó ekki jafn skemmtileg og daginn áður, nokkrir urðu sjóveikir enda var haugasjór þrátt fyrir ágætis veður.  Þá var gott að geta lagt sig í koju, þótt fæstir geri það fyrirfram sjálfviljugir.
 
Til baka

Athugasemdir

Hleð mynd
Æfingartímar
Æfingatafla fyrir 2011/2012

 
Meistaraflokkur & Dr. flokkur
 
Þriðjudagar      19:00 - 20:30
Miðvikudagar    20:00 - 21:30
Fimmtudagar    20:00 - 21:30
 
Þjálfarar: Guðmundur & Arnsteinn
 
 
8 flokkur(7 & 8 bekkur) 


 Mánudagar      20:30 - 21:45 
Miðvikudagar 19:00 - 20:00
Föstudagar     15:00 -16:00
 
Þjálfari: Heiðar Smári Ingimarsson s:661 1072
email: heidars13@gmail.com
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000


 
Minnibolti (5 & 6 bekkur)
 
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000
 
 
Míkróbolti (1-4 bekkur)
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Frítt að æfa