Leikir framundan hjá KKF ÍBV
Úrslit, leikir og staða:
Leiktíð K.K.D. ÍBV 2011-2012:
Meistaraflokkur:

2.d.karla:
Dagskrá og staða.

Nákvæm staða.

Dagskrá og úrslit.
Liðin.

Skortölfræði.

Dagskrá hjá ÍBV.

Úrslit hjá ÍBV.

Drengjaflokkur:

8. flokkur:

Minnibolti:

Eyjapeyjar í örðum liðum:

Kristján Tómasson (íBV) / Keflavík

Alexander Jarl (ÍBV/Haukar) / Stjarnan

Kristján E. (ÍBV) / Sindri

Fréttir

18. janúar 2010

Íþróttamaður körfuknattsfélag ÍBV 2009

Kristján Tómasson
vantar mynd
Í kvöld fór fram árleg verðlaunaafhending Héraðssambands ÍBV þar sem tilkynnt var um val á Íþróttamanni Vestmannaeyja. Aðildarfélögin völdu jafnframt íþróttamann ársins innan sinna raða. Athöfnin var að vanda hátíðleg og vel að henni staðið.
 
Að þessu sinni hlaut bakvörðurinn knái Kristján Tómasson titilinn Körfuknattleiksmaður ársins 2009. Kristján hefur hlotið þennan heiður þrisvar áður, 2004, 2005 og 2006. Kristján hefur tekið miklum framförum síðasta árið og gegnir í dag veigamiklu hlutverki í liði meistaraflokks karla þrátt fyrir ungan aldur. Á þessu leiktímabili hefur Kristján sótt í sig veðrið í stigaskorun í meistaraflokki og hefur verið að skila 20-30 stigum í leik auk þess að stýra sóknarleik liðsins eins og herforingi. Það verður gaman að fylgjast með Kristjáni og vonandi verður þessi viðurkenning honum hvatning til enn frekari afreka á körfuboltavellinum.
 
Íþróttamaður Vestmannaeyja 2009 var valin knattspyrnukonan Þórhildur Ólafsdóttir en hún hefur staðið fremst meðal jafningja í ungu og efnilegu liði ÍBV. Það var jafnframt tilkynnt á afhendingunni að Þórhildur hafi verið valinn í æfingahóp íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu. Körfuknattleiksfélag ÍBV óskar Þórhildi til hamingju með árangurinn.
 
Íþróttabandalag Vestmannaeyja veitti að vanda viðurkenningu fyrir störf í þágu hreyfingarinnar. Í ár var það Sigursteinn Óskarsson sem var heiðraður fyrir framlag sitt til starfsemi íþróttahreyfingarinnar en hann hefur meðal annars 49 sinnum tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd Þrettándahátíðar ÍBV. Körfuknattleiksfélag ÍBV óskar Sigursteini til hamingju með viðurkenninguna.
 
Vestmannaeyjabær notaði tækifærið og úthlutaði viðbótarstyrkjum til aðildarfélaga ÍBV og afhentu Arnsteinn Ingi Jóhannesson og Páll Marvin Jónsson styrkina til fulltrúa aðildarfélaganna.
 
Hér má finna myndir frá athöfninni þegar Kristján Tómasson tók við bikarnum góða. Myndirnar tók Óskar Pétur Friðriksson og kunnum við honum bestu þakkir fyrir að fá að birta þær hér.
 

Til baka

Athugasemdir

Hleð mynd
Æfingartímar
Æfingatafla fyrir 2011/2012

 
Meistaraflokkur & Dr. flokkur
 
Þriðjudagar      19:00 - 20:30
Miðvikudagar    20:00 - 21:30
Fimmtudagar    20:00 - 21:30
 
Þjálfarar: Guðmundur & Arnsteinn
 
 
8 flokkur(7 & 8 bekkur) 


 Mánudagar      20:30 - 21:45 
Miðvikudagar 19:00 - 20:00
Föstudagar     15:00 -16:00
 
Þjálfari: Heiðar Smári Ingimarsson s:661 1072
email: heidars13@gmail.com
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000


 
Minnibolti (5 & 6 bekkur)
 
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000
 
 
Míkróbolti (1-4 bekkur)
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Frítt að æfa