Eins og áður sagði var fyrri leikur liðanna jafn og spennandi. Eyjamenn höfðu þó undirtökin og voru yfir í hálfleik 57:49. Undir lokin var talsverð spenna þar sem Árborg þjarmaði að Eyjamönnum, sem héldu þó út og unnu eins og áður sagði 96:85.
Stig ÍBV: Sigurjón Örn Lárusson 25, Kristján Tómasson 22, Albert Sævarsson 14, Brynjar Ólafsson 11, Eðvald Freyr Ómarsson 10, Hlynur Andrésson 8, Einar Kristinn Helgason 4. Stigaskorara vantar fyrir tvö stiga ÍBV.
Síðari leikurinn var á aðeins öðruvísi nótum. Eyjamenn náðu strax þægilegu forskoti í 1. leikhluta og héldu áfram að auka forskotið í 2. leikhluta en staðan í hálfleik var 44:27. Í lok 3. leikhluta náðu gestirnir þó að minnka muninn og um miðjan 4. leikhluta var forskotið komið niður í 11 stig og gestirnir til alls líklegir. En í liði Eyjamanna eru reynslumiklir leikmenn og þeir sáu til þess að ÍBV hafði betur.
Stig ÍBV: Kristján Tómasson 30, Sigurjón Örn Lárusson 22, Eðvald Freyr Ómarsson 14, Brynjar Ólafsson 7, Albert Sævarsson 6, Hlynur Andrésson 4, Einar Kristinn Helgason 4. Kristinn Þór Jóhannesson var nálægt því að skora körfu einu sinni.


