Leikir framundan hjá KKF ÍBV
Úrslit, leikir og staða:
Leiktíð K.K.D. ÍBV 2011-2012:
Meistaraflokkur:

2.d.karla:
Dagskrá og staða.

Nákvæm staða.

Dagskrá og úrslit.
Liðin.

Skortölfræði.

Dagskrá hjá ÍBV.

Úrslit hjá ÍBV.

Drengjaflokkur:

8. flokkur:

Minnibolti:

Eyjapeyjar í örðum liðum:

Kristján Tómasson (íBV) / Keflavík

Alexander Jarl (ÍBV/Haukar) / Stjarnan

Kristján E. (ÍBV) / Sindri

Fréttir

27. október 2010

Minniboltinn:

Vel heppnuð ferð til Reykjavíkur

- strákarnir unnu einn, gerðu jafntefli og héldu sér í C-riðli
vantar mynd
Minnibolti drengja fór í sína fyrstu ferð um síðustu helgi. Ferðinni var heitið til Reykjavíkur og eftir að hafa legið á bæn og vonað að Landeyjahöfn myndi opna, mættu menn eldhressir klukkan sjö á laugardagsmorguninn, tilbúnir í þriggja tímasiglingu með skemmtiskipinu Herjólfi. Ferðin var góð enda rennisléttur sjór.

Fararstjóri í ferðinni var Guðni Sigurðsson, þjálfarinn er undirritaður, Júlíus G. Ingason en leikmenn voru í stafrófsröð: Arnar Júlíusson, Ágúst Marel Gunnarson, Baldur Haraldsson, Hjörtur Ægisson, Jörgen Freyr Ólafsson, Sigurður Guðnason og Víðir Gunnarsson. Semsagt, heil herdeild af hressum Eyjapeyjum sem áttu eftir að vekja athygli á mótinu fyrir mikla baráttu.
 
Óheppnir gegn Valsmönnum
Eftir að hafa brunað í bæinn, var komið við á Bæjarins bestu til að pulsa sig upp fyrir átökin. Þá komum við okkur fyrir í Garðaskóla í Garðabæ, en þar gistum við ásamt peyjunum í 9. flokki. Fyrsti leikurinn var svo klukkan 15:00 í Seljaskóla og andstæðingurinn var Valur. Fyrstu tveir leikhlutarnir voru í járnum, staðan 8:8 eftir fyrsta leikhlutann og 12:12 eftir annann. En þá kom slæmi kaflinn, Valsmenn settu þrjár körfur og voru yfir 17:24 eftir þriðja leikhlutann. Munurinn jókst í þeim fjórða í 21:31 en Valsmenn unnu að lokum 29:42. Glöggir lesendur sjá að leikhlutarnir eru fimm í minniboltanum og spilaðar 8 mínútur í senn. Tíminn er bara stoppaður í síðasta leikhlutanum en þá eru aðeins leyfðar skiptingar og eitt leikhlé. Menn voru ekki sáttir við tapið en voru ákveðnir í að tapa ekki tveimur leikjum þennan daginn.
ÍBV-Valur 29:42 (8:8, 12:12, 17:24, 21:31)
Stig ÍBV: Jörgen Freyr Ólafsson 12, Ágúst Marel Gunnarsson 9, Hjörtur Ægisson 4, Sigurður Guðnason 2, Víðir Gunnarsson 2.
 
Leikur mótsins gegn UMFH
Þá var komið að leik mótsins að margra mati þegar við mættu félögum okkar úr Hrunamannahreppi. Eyjamenn og Hrunamenn léku alltaf í sama riðli síðasta vetur og lánaðist okkur aldrei að leggja þá að velli, þótt oft væri mjótt á mununum. Peyjarnir voru ákveðnir í að nú skildu Hrunamenn lagðir að velli og útlitið var gott framan af. Leikurinn var í járnum allan tímann, Hrunamenn voru yfir eftir fyrsta leikhluta 7:10 og 12:14 eftir annan leikhluta. Við komumst hins vegar yfir í þeim þriðja og vorum 20:18 yfir fyrir fjórða leikhluta. Þar kom hins vegar slæmur kafli. Hrunamenn náðu sex stiga forystu 22:28 fyrir síðasta leikhlutann. En þá kom fram hin eina sanna Eyjabaráttan. Strákarnir skoruðu tíu stig gegn engu stigi Hrunamanna og voru fjórum stigum yfir þegar mínúta var eftir. En þessi sprettur kostaði mikið þrek og þegar aðeins tveir skiptimenn eru í hópnum, þá segja erfiðir leikir til sín. Hrunamenn náðu að jafna metin þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir og frábærum körfuboltaleik lauk því með jafntefli 32:32.
ÍBV-Hrunamenn 32:32 (7:10, 12:14, 20:18, 22:28)
Stig ÍBV: Sigurður Guðnason 10, Jörgen Freyr Ólafsson 9, Ágúst Marel Gunnarsson 6, Hjörtur Ægisson 3, Víðir Gunnarsson 2, Arnar Júlíusson 2.
 
Með Sveppa í bíó
Þá var fyrri leikdegi lokið og kominn tími á að gera eitthvað skemmtilegt. Við byrjuðum á því að henda af okkur dótinu og héldum í hefðina með því að fara á KFC í Hafnarfirði í þetta skiptið. Þar hittum við 9. flokkinn og saman fórum við allir á bíómyndina Dinner for Smucks. Sveppi karlinn vildi endilega koma með okkur og fékk að sitja við hliðina á Arnari, sem spjallaði aðeins við karlinn. En myndin var sprenghlægileg og góður endir á ágætum degi. Menn voru reyndar í smá stund að sofna um kvöldið enda spennandi dagur sem beið.
 
ÍR-ingar of sterkir
Eftir að hafa tekið daginn snemma var brunað upp í Seljaskóla til að spila síðari tvo leikina. Við byrjuðum gegn heimamönnum í ÍR sem voru klárlega með lang sterkasta liðið. Þjálfarinn hafði temmilegar væntingar fyrir leikinn og ÍR-ingar voru ekkert að tvínóna við hlutina, náðu strax sex stiga forystu í 1. leikhluta, 9:3. Munurinn jókst enn meira í síðari hálfleik í 19:5 og það var engu líkara en að leikmenn ÍBV væru ekki vaknaðir. En það gerðu þeir loksins í 3. leikhluta, þann leikhluta vann ÍBV 4:8 og staðan því 23:13. Eftir þessa slæmu byrjun hélst munurinn um tíu stig en að lokum unnu ÍR-ingar 46:33. Leikurinn kom mörgum á óvart enda bjuggust flestir við að ÍR-ingar ættu léttan leik fyrir höndum. En þegar menn standa saman eins og ÍBV gerði, þá er erfitt að brjóta liðin á bak aftur. Í ÍR var einn leikmaður sem bar höfuð og herðar yfir aðra á vellinum og þannig var það líka gegn Val. Ef þessir leikmenn hefðu ekki verið til staðar, hefði ÍBV án efa unnið báða leikina en þannig er nú það.
ÍR-ÍBV 46:33 (9:3, 19:5, 23:13, 34:25)
Stig ÍBV: Ágúst Marel Gunnarsson 17, Hjörtur Ægisson 10, Jörgen Freyr Ólafsson 4, Sigurður Guðnason 2.
 
Sigur í síðasta leik
Þá var komið að síðasta leiknum og það gegn Þór frá Akureyri. Þetta var hreinn úrslitaleikur um hvort liðið myndi falla um riðil. Leikmenn fengu að vita það fyrir leik að það yrði annað hvort nú eða aldrei ef þeir ætluðu sér að vinna leik um helgina og þeir tóku þjálfarann á orðinu. Fyrsti leikhluti var í jafnvægi en Eyjamenn voru yfir 6:4. Í 2. leikhluta tóku leikmenn ÍBV svo öll völd á vellinum og skoruðu sjö stig gegn tveimur stigum Þórsara en Hjörtur skoraði fimm af þessum sjö stigum. Þórsarar náðu að saxa á forskotið í 3. leikhluta, 15:12 en aftur tóku Eyjapeyjar við sér og náðu 11 stiga forystu fyrir síðasta leikhlutann 25:14. Þeir héldu forystunni og leiknum lyktaði með 32:21 sigri ÍBV. Þar með var fyrsti sigurinn í höfn og góður endir á annars ágætu móti.
ÍBV-Þór 32:21 (6:4, 13:6, 15:12, 25:14)
Stig ÍBV: Jörgen Freyr Ólafsson 12, Ágúst Marel Gunnarsson 8, Hjörtur Ægisson 7, Sigurður Guðnason 4, Víðir Gunnarsson 1.
 
Undirbúningur hafinn
Eftir að við vorum búnir að taka saman dótið okkar í Garðaskóla var ferðinni heitið Eldsmiðjuna til að næra sig. Eftir þokkalega bið fengum við dýrindis pizzur sem runnu ljúflega niður. Þá var haldið í Laugardalslaugin til að þvo af okkur Reykjavíkurlyktina áður en við brunuðum aftur til Þorlákshafnar. Ferðinni lauk svo við komu Herjólfs á sunnudagskvöldið og nú hefst undirbúningur fyrir næsta mót sem verður helgina 20.-21. nóvember. Ekki er vitað hvar mótið verður haldið en með okkur í riðli verða Sindri frá Hornafirði, Valur, Hrunamenn og KR-B.
 
Júlíus G. Ingason
Þjálfari minniboltans
Til baka

Athugasemdir

Hleð mynd
Æfingartímar
Æfingatafla fyrir 2011/2012

 
Meistaraflokkur & Dr. flokkur
 
Þriðjudagar      19:00 - 20:30
Miðvikudagar    20:00 - 21:30
Fimmtudagar    20:00 - 21:30
 
Þjálfarar: Guðmundur & Arnsteinn
 
 
8 flokkur(7 & 8 bekkur) 


 Mánudagar      20:30 - 21:45 
Miðvikudagar 19:00 - 20:00
Föstudagar     15:00 -16:00
 
Þjálfari: Heiðar Smári Ingimarsson s:661 1072
email: heidars13@gmail.com
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000


 
Minnibolti (5 & 6 bekkur)
 
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000
 
 
Míkróbolti (1-4 bekkur)
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Frítt að æfa