Leikir framundan hjá KKF ÍBV
Úrslit, leikir og staða:
Leiktíð K.K.D. ÍBV 2011-2012:
Meistaraflokkur:

2.d.karla:
Dagskrá og staða.

Nákvæm staða.

Dagskrá og úrslit.
Liðin.

Skortölfræði.

Dagskrá hjá ÍBV.

Úrslit hjá ÍBV.

Drengjaflokkur:

8. flokkur:

Minnibolti:

Eyjapeyjar í örðum liðum:

Kristján Tómasson (íBV) / Keflavík

Alexander Jarl (ÍBV/Haukar) / Stjarnan

Kristján E. (ÍBV) / Sindri

Fréttir

06. desember 2010

M.fl. 2. d. b-iðils: ÍBV - KV 104 - 89

Jón Gunnar skoraði 57 stig í sigrinum á KV

- toppaði stórleik sinn með flautukörfu í lok leiks
vantar mynd
Jón Gunnar Magnússon, þjálfari körfuknattleiksliðs ÍBV fór á kostum í dag þegar liðið tók á móti Reykjavíkurliðinu KV í Eyjum. Jón Gunnar skoraði hvorki meira né minna en 57 stig í leiknum í dag, sem er líklega hæsta stigaskor leikmanns í Eyjum frá upphafi. Það þarf varla að taka það fram að þetta er líka það mesta sem Jón Gunnar hefur skorað í einum leik. ÍBV vann nokkuð þægilegan sigur, 104:89 en staðan í hálfleik var 55:44.

Fyrsti leikhlutinn var í járnum og að honum loknum höfðu Eyjamenn eins stigs forystu 27:26. En í 2. leikhluta small vörnin saman, gestirnir skoruðu aðeins 18 stig á móti 28 stigum ÍBV og staðan í hálfleik eins og áður sagði 55:44. Eyjamenn juku muninn enn meira í 3. leikhluta, í 84:65 en gestirnir náðu aðeins að laga stöðuna í síðasta leikhlutanum. 
 
Bestu tilþrif leiksins átti svo Jón Gunnar en Eyjamenn unnu boltann þegar rúmar tvær sekúndur voru eftir af leiknum. Jón Gunnar fékk boltann út við hliðarlínu, líklega tveimur metrum fyrir aftan miðlínu og lét vaða á körfuna og um leið og lokaflautan gall fór boltinn beint ofan í. Glæsileg tilþrif hjá hinum sjóðheita þjálfara ÍBV. Þess má til gamans geta að Jón Gunnar er að stíga upp úr flensu sem skýrir hugsanlega þennan mikla hita í leikmanninum. 
 
Stig ÍBV: Jón Gunnar Magnússon 57, Sigurjón Lárusson 19, Þorvaldur Kristjánsson 12, Smári Þorvaldsson 5, Daði Guðjónsson 5, Hlynur Andrésson 4, Tómas Tómasson 2.
 
 
- Þess má geta að bæði Morgunblaðið og www.karfan.is tóku upp frétt Eyjafrétta og sögðu frá afreki Jóns Gunnars enda ekki á hverjum degi sem einn maður skorar 57 stig í einum leik.
Til baka

Athugasemdir

Hleð mynd
Æfingartímar
Æfingatafla fyrir 2011/2012

 
Meistaraflokkur & Dr. flokkur
 
Þriðjudagar      19:00 - 20:30
Miðvikudagar    20:00 - 21:30
Fimmtudagar    20:00 - 21:30
 
Þjálfarar: Guðmundur & Arnsteinn
 
 
8 flokkur(7 & 8 bekkur) 


 Mánudagar      20:30 - 21:45 
Miðvikudagar 19:00 - 20:00
Föstudagar     15:00 -16:00
 
Þjálfari: Heiðar Smári Ingimarsson s:661 1072
email: heidars13@gmail.com
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000


 
Minnibolti (5 & 6 bekkur)
 
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000
 
 
Míkróbolti (1-4 bekkur)
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Frítt að æfa