Síðasti leikur í riðlinum fór fram í Vestmannaeyjum laugardaginn 26 mars. Eyjamenn voru mættir með sinn allra besta mannskap og nýbúnir að vinna síðasta heimaleik með rúmum 80 stigum. Það var því ekki árennilegt að spila gegn þeim. En það voru tíu menn sem héldu í ferðalag og ætluðu sér að leggja heimamenn.
Átta fóru með Herjólfi í frábæru veðri. Nánast var sléttur sjór en einhverjir sáu víst öldur á stærð við hæðstu öldur í heimi. Tveir ofurreynsluboltar Hlynur og Rúnar komu með flugi þar sem að Herjólfsferð var ekki efst á vinsældarlista þeirra .Vegna meiðsla leikmann var Jón Þjálfari settur á skýrslu enda búinn að vera á hlaupabretti í allan vetur.Undirritaður var einnig á skýrslu þó veikur væri.
Leiktíminn í hádeginu sem er ekki alveg vinsælast tíminn til að vera að spila en það var ekkert annað í boði því koma þurfti dómurum heim með Herjólfi. Leikurinn fór strax vel af stað og hörkubarátta strax. Eyjamenn litu vel út í byrjum og hirtu ógrynni af fráköstum sem skilaði þeim tveim til þrem tilraunum í sókninni. En sem betur fer þá voru okkar menn að hitta vel og því jafnræði á liðunum í fyrsta leikhluta (23-23).
Í öðrum leikhluta héldu eyjamenn áfram að hirða fleirri fráköst og fóru að uppskera eftir því. Þeir ná frumkvæði og mest 9 stiga mun 42-33. En góður endasprettur þar sem að Palli negli niður þrist lengst utan af velli og síðan tvö stig úr hraðaupphlaupi á lokasekúndu fjórðungsins eftir blokk frá Elvari sem endaði nánast hinum megin á vellinum. Staðan því í hálfleik 44-41.
Eftir hálfleiksræðu Jóns komu menn á fullum krafti inn í seinni hálfleikinn og voru staðráðnir í því að láta eyjamenn ekki vera að hirða sóknarfráköstin. Það gekk eftir og fljótlega fóru menn að sjá að veikleikar voru í eyjaliðinu en samt hélt barningurinn áfram. Liðin skiptust á að hafa forystu í þriðja leikhluta. 46-44, 54-55, 61-59, (63-61) Munurinn því enginn fyrir lokaleikhlutann.
Eyjamenn komast fljótlega í fimm stiga mun (69-64) En þrír þristar frá Palla og Hlyn ásamt 4 stigum frá Hlyn í viðbót koma blóðbragði í leikmenn og staðan 75-79 og aðeins tæpar tvær mínútur eftir. Vendipunturinn kom síðan þegar tæp mínúta var eftir. Eyjamenn voru búnir að spila hörkuvörn og Óli Geir varð að taka hálfgert neyðarskot um leið og sóknarklukkan rann út. Skotið steinlá og munurinn kominn í sex stig (77-83).
Lokasekúndur leiksins fóru síðan fram á vítalínunni þar sem eyjamenn freistuðu þess að brjóta til að reyna að jafna leikinn. Vítanýting okkar manna hefði mátt vera betri en aðeins 3 af 6 vítum lágu á þessum tímapunti. Það kom sem betur fer ekki að sök og sanngjarn sigur í höfn. (82-86)
Þessi úrslit þíða það að Reynismenn eru ennþá taplausir á útivelli í vetur og taplausir á þessu ári. Næst leikur er við Patrek úr Kópavogi í 8 liða úrslitum 2 deildar á föstudaginn 1 apríl kl 19.00 í Sandgerði.
| Nr. | Nöfn. | 3st - 3st oní | 3% | 2st - 2st oní | 2% | Víti - Víti oní | V% | Villur | SF | VF | Fráköst | Stoð | Tap | Stol | Blokk | Heildarstig |
| 4 | Arnar Karlsson | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 1 | 0 | 1 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Hlynur Jónsson | 4 | 1 | 25 | 10 | 4 | 40 | 2 | 2 | 100 | 1 | 3 | 4 | 7 | 2 | 0 | 0 | 0 | 15 |
| 8 | Rúnar Ágúst Pálsson | 2 | 1 | 50 | 5 | 4 | 80 | 8 | 6 | 75 | 3 | 0 | 1 | 1 | 5 | 3 | 0 | 0 | 15 |
| 9 | Ólafur Geir Jónsson | 1 | 1 | 100 | 6 | 3 | 50 | 0 | 0 | 0 | 2 | 2 | 7 | 9 | 4 | 1 | 2 | 0 | 9 |
| 10 | Jón Guðbrandsson | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hinrik Albertsson | 1 | 0 | 0 | 2 | 1 | 50 | 2 | 1 | 50 | 1 | 0 | 1 | 1 | 0 | 4 | 0 | 0 | 5 |
| 12 | Sveinn Hans Gíslason | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Elvar Sigurjónsson | 0 | 0 | 0 | 11 | 5 | 45,4 | 9 | 3 | 33,3 | 3 | 0 | 7 | 7 | 4 | 1 | 2 | 1 | 13 |
| 14 | Páll Kristinsson | 17 | 7 | 41,1 | 4 | 2 | 50 | 2 | 1 | 50 | 0 | 0 | 0 | 0 | 3 | 1 | 0 | 0 | 26 |
| 15 | Bjarni Rúnarsson. | 0 | 0 | 0 | 4 | 1 | 25 | 2 | 1 | 50 | 4 | 3 | 0 | 3 | 0 | 0 | 0 | 0 | 3 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| | Samtals. | 25 | 10 | 40 | 42 | 20 | 47,6 | 25 | 14 | 56 | 15 | 7 | 21 | 28 | 18 | 10 | 4 | 1 | |