Leikir framundan hjá KKF ÍBV
Úrslit, leikir og staða:
Leiktíð K.K.D. ÍBV 2011-2012:
Meistaraflokkur:

2.d.karla:
Dagskrá og staða.

Nákvæm staða.

Dagskrá og úrslit.
Liðin.

Skortölfræði.

Dagskrá hjá ÍBV.

Úrslit hjá ÍBV.

Drengjaflokkur:

8. flokkur:

Minnibolti:

Eyjapeyjar í örðum liðum:

Kristján Tómasson (íBV) / Keflavík

Alexander Jarl (ÍBV/Haukar) / Stjarnan

Kristján E. (ÍBV) / Sindri

Fréttir

12. júní 2011

Götukörfueinvigi Daða og Kára 16. júní 2011 kl.21

Einvígi Ársins - Daði vs. Kári á fimmtudaginn

vantar mynd
Í upphafi sumars 2010 háðu þeir Daði Guðjónsson og Kári Kristján Kristjánsson epískt körfuboltaeinvígi á Barnaskólalóðinni í Vestmannaeyjum. Spilað var eftir make-it/take-it fyrirkomulagi og þurfti 10 stig til að vinna leikinn. Kári byrðaji af miklum krafti og setti niður nokkur öflug stig sem Daði átti fá svör við.

Í stöðunni 7-3 bað Daði svo um lékhlé, lafmóður og þreyttur. En Kári hélt nú aldeilis ekki og sá sér gott til glóðarinnar, enda stutt í stigin 10. Hann sagði Daða að drulla sér á lappir og taka refsingu sinni eins og karlmanni sæmir. Daði virtist hins vegar tvíeflast við mótlætið og setti í kjölfarið niður hvert stigið af öðru. Þvílíkum hamförum fór Daði á lokasprettinum að hann breytti þessum svo til séð tapaða leik sér í hag, án þess að Kári ætti nokkur svör við og endaði sem sigurvegari með stöðuna 10-7.
 
Allar götur síðan leikur þessi var spilaður hefur Daði núið þessum ósigri Kára um nasir og hampað tölunum "10-7" upp í opið geðið á honum við hvert einasta tækifæri. Kári hefur nú fengið sig fullsaddan á mótlætinu og hefur skorað á Daða í rematch í sumar.
 
Kjartan Ólafsson Vídó hefur tekið að sér að undirbúa Kára Kristján andlega og líkamlega fyrir þennan leik, á meðan Hannes Kristinn Eiríksson hefur tekið að sér þjálfun Daða fyrir einvígið. Dómari einvígisins verður Andri Hugo Runólfsson.
 
Einvígi Ársins fer fram á Barnaskólalóðinni í Vestmannaeyjum að kvöldi 16. júní 2011 og eru allir velkomnir að mæta, fylgjast með og kvetja sinn mann til dáða.
 
http://eyjar.net/frett/2011/06/12/einvigi_arsins_-_dadi_vs__kari_a_fimmtudaginn
Til baka

Athugasemdir

Hleð mynd
Æfingartímar
Æfingatafla fyrir 2011/2012

 
Meistaraflokkur & Dr. flokkur
 
Þriðjudagar      19:00 - 20:30
Miðvikudagar    20:00 - 21:30
Fimmtudagar    20:00 - 21:30
 
Þjálfarar: Guðmundur & Arnsteinn
 
 
8 flokkur(7 & 8 bekkur) 


 Mánudagar      20:30 - 21:45 
Miðvikudagar 19:00 - 20:00
Föstudagar     15:00 -16:00
 
Þjálfari: Heiðar Smári Ingimarsson s:661 1072
email: heidars13@gmail.com
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000


 
Minnibolti (5 & 6 bekkur)
 
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Æfingagjöld f. allt tímabilið 14.000
 
 
Míkróbolti (1-4 bekkur)
 
Þriðjudagar    16:30 - 17:30
Föstudagar     14:00 - 15:00
 
 
Þjálfari: Heiðar Smári s:661 1072
Frítt að æfa