Hver sér eiginlega um síðuna??
Eftir Ægir þann 25 nóvember 2009 klukkan 22:27
Er ekki einhver sem sér um síðuna...er búinn að bíða eftir að sjá leiki liðsins en ekkert bólar á leikjaröðinni..einn áhugasamur.
Hver sér eiginlega um síðuna??
Eftir Áhugamaður þann 25 nóvember 2009 klukkan 22:40
já sammála Ægi. Vil líka sjá fleiri úrslit leikja og umfjallanir úr yngri flokka leikjum. Vantar heilan helling af úrslitum og umfjöllunum yngri flokka leikja.
Er bara hugsað um Meistaraflokk í dag ?
Hver sér eiginlega um síðuna??
Eftir Ægir þann 25 nóvember 2009 klukkan 23:18
Það virðist bara enginn vera með stjórnartaumanna á þessu..einhver verður að toga í spotta.
Hver sér eiginlega um síðuna??
Eftir Pálmi Freyr þann 25 nóvember 2009 klukkan 23:58
Blessaðir Ægir og áhugamaður.
Ég er einn af þeim sem hefur aðgang að síðunni, og ég hef reynt að sinna henni einhvað. Ég hef lítinn tíma til að sinna henni eins og vildi, og aðrir líka sem ég veit reyndar ekki hverjir eru (þeir gefa ekki upp höfundanafn færslna).
Svo er ritillinn á stjórnborði síðuna ekki alveg nógu góður (enn?). Er t.d. bara hægt að skrifa texta. Enn það er til dæmis ekki hægt að setja youtube myndband á síðuna.
Umfjallir um leikja síðustu ára hefur fyrrverandi þjálfari Björn Einarsson ert nokkuð samviskulega. Enn núna er kominn til okkar þjálfari sem er enskumælandi. Og þarleiðandi þarf að þýða yfir á íslensku. Sem enginn virðist nenna að gera. Kannski er bara betra að henda enskunni inná síðuna frekar enn ekkert.
Úrslit leikja er ég að reyna rafa upp á vef kki.is enn þar virðist úrslit skila sér mjö illa. Svo hef ég á á félagsvefjum, enn ekki er ástandið betra enn hjá okkur.
Hver sér eiginlega um síðuna??
Eftir Ægir þann 26 nóvember 2009 klukkan 18:47
En það hlýtur nú að vera einhver fullorðinn enskumælandi maður þarna..er Addi ekkert í þessu..eða einhver sem er kunnugur stöðu mála.
Hver sér eiginlega um síðuna??
Eftir Pálmi Freyr þann 28 nóvember 2009 klukkan 05:22
Ég ætla að leiðrétta mig á að segja að ritillinn á stjórnborðinu sé ekki nógu góður............. Enn skýringinn á því hvers vegna ég sagði þetta er vegna þess að hafði einhvernhluta vegna ekki skrollað síðunni nógu vel upp til að sjá alla þessa möguleika sem hægt er að setja á færslur, t.d. youtubemyndbönd.
Býð ég eigendur Smart Media innilega afsökurnar á að yfirsjást þetta. Vonandi að svona vitleysa í mér valdi ekki leiðindum.
Ægir: Ég held að Addi sé nánast búinn að leggja körfuboltann á hilluna